Leita að vörumerki, einkaleyfi og hönnun á Íslandi

Vörumerki
Vörumerki eru notuð til að merkja vörur og þjónustu. Með skráningu skapast einkaréttur til þess að nota merki, endalaust ef skráningin er endurnýjuð á 10 ára fresti.

Hönnun
Skráð hönnun verndar útlit vöru. Með skráningu er tryggður réttur í allt að 25 ár til þess að beita gegn afritun og eftirlíkingum.

Einkaleyfi
Einkaleyfi vernda tæknilegar uppfinningar. Einkaleyfi getur gilt í allt að 20 ár og tryggir eiganda einkarétt á hagnýtingu uppfinningar.
Þjónusta okkar

Hugverkaráðgjöf
Vantar þig aðstoð við að fóta þig í heimi hugverkaréttinda? Hægt er að bóka ráðgjöf til að kanna valkosti.

Samtalsleit
Ert þú með uppfinningu og vilt sækja um einkaleyfi? Hægt er að bóka fjarfund með rannsakanda sem kannar nýnæmi uppfinningarinnar. Leitin getur sparað tíma og fjármagn.

Samanburðarleit
Ert þú með hugmynd að vörumerki? Hægt er að panta samanburðarleit þar sem sérfræðingur kannar hvort eins eða líkt vörumerki sé þegar til.

Nordic Patent Institute
NPI býður upp á fjölbreytta leitarþjónustu á sviði tæknilegra uppfinninga m.a. fyrir uppfinningamenn, fyrirtæki og lögfræðistofur.
Tölfræði
63.932
Tölfræði
þar af 7.139 íslensk
3.811
Tölfræði
árið 2024
9.588
Tölfræði
þar af 100 íslensk
1.479
Tölfræði
þar af 92 íslenskar
Nýjustu fréttir
Prufa
20. október 2025Pistlar
prufa

Einkaleyfi eru hreyfiafl nýsköpunar og vaxtar
20. október 2025Einkaleyfi
Íslendingar eiga mikil sóknarfæri á sviði hugverkaverndar, ekki síst í verndun uppfinninga með einkaleyfum.

Hafnfirðingar halda með Hafnfirðingum – Barbara kaffibar er vörumerki mánaðarins
25. september 2025Vörumerki
Í haust opnaði Barbara kaffibar á Strandgötunni í Hafnarfirði. Katla Karlsdóttir er einn eigenda staðarins og segir að stefnan sé að Barbara sé kaffihús plús og samkomustaður fyrir Hafnfirðinga. Barbara kaffibar er skráð vörumerki septembermánaðar hjá Hugverkastofunni.



